Sunday 30 November 2008

Kvöldmatur í góðra vina hóp

Ég og Britta héldum smá matarboð í gærkvöldi í íbúðinni minni fyrir tvær bekkjarsystur okkar, þær Preeti og Michelle. Britta er náttúrulega ekkert venjulegur kokkur...hún er búin að fara á fullt af matreiðslunámskeiðum og læra að elda allra þjóða rétti. Ótrlúlega gaman að henni, fyrst eldaði hún fyrir mig Brasilískan fiskrétt, svo eldaði hún og kærastinn hennar fyrir mig svaka svínalundarétt með parmaskinku og látum og í gær eldaði hún egypsan kjúkling fyrir okkur. Þetta hefur allt bragðast ótrúlega vel hjá henni enda leggur hún ekkert smá í þetta. Í egypska kjúklingnum í gær voru t.d. appelsínur, epli, sítróna, rúsínur, aprókósur, laukur, hrísgrín, möndlur og örugglega 8 tegundir af kryddi...rosewater, Baharat, Curry, Saffron, kanill, grænmetis og kjúklingasoð, salt og pipar.


***




Þetta bragðaðist auðvitað ótrúlega vel, kemur mér eiginlega bara á óvart hvað allir þessi framandi réttir eru góðir. Svo innihalda þeir hráefni sem maður er kannski ekki svo duglegur að nota sjálfur í matargerð t.d. appelsínur, epli, apríkósur og rúsínur. Það er allavega alveg á hreinu að þetta var mjög hollur kvöldmatur :)



***

Eftir matinn var svo hlaðið í sig óhollustinni, heit súkkulaðikaka, núggat og þýskt eðalsúkkulaði...þarf fór öll hollustan! hahaha...:) En þetta var allt mjög gott auðvitað...


***
Við tókum svo smá Ludo spil, hlóum mikið enda þekktum við þetta allar frá því við vorum krakkar en engin okkar hafði spilað Ludó í mörg ár. Sem sagt mjög vel heppnað kvöld í alla staði. Ég fór svo snemma að sofa enda alveg búin á því eftir vikuna.



***
Í morgun var svo varknað snemma og farið út á bókasafn...er á fullu að gera HRM verkefnið, 25 blaðsíðna ritgerð fyrir utan viðauka sem við eigum að skila næsta föstudag. Þetta mjakast allt saman auðvitað...kemur allt að lokum :)

***
Langar svo ótrúlega að breyta flugfarinu mínu heim fyrir jólin eða seinka því fram yfir áramót....er með bókað flug heim 18 des en get í raun flogið heim 13-14 des því síðasti skóladagurinn er föstudagurinn 12des. Mest langar mig þó að breyta fluginu fram yfir áramót...á bókað til Glasgow 30.des en langar að fresta því fram til 4.jan...En það kostar klikkað mikið að breyta flugmiðanum...kostar einhvern 30þúsund kall...úff mér finnst það ekki sanngjarnt...Get ekki beðið eftir að koma heim!!!

Saturday 29 November 2008

Byrjuð í ræktinni

Hvernig gat ég gleymt því hvað það er yndislegt að fara í ræktina!!!! Reyndar var ég ekkert búin að gleyma því...hef bara alls ekki haft tíma til að fara og þið vitið hvernig þetta er...þegar álagið er mikið þá er það fyrsta sem maður hættir að gera er að fara í ræktina og hugsa um heilsuna!
*
Allavega, þá er ég búin að vera svo löt síðustu vikuna, nenni varla að koma mér í að læra og er stöðugt að hugsa um hvað það er stutt þangað til ég kem heim. Ég ákvað því að drífa mig bara í því að kaupa kort í ræktinni til að geta dreyft huganum aðeins þessar þrjár vikur sem eftir eru. Nú ætla ég að gefa mér pásu til að fara í ræktina annan hvern dag....ég bara verð að gera það til að halda geðheilsunni :) Er ekki alveg að meika þetta álag þessa dagana og að vera stöðugt að hugsa um lærdóm! Ég lærði því í morgun og tók mér svo tveggja tíma pásu til að fara í ræktina rétt áðan. Mmmm yndislegt að fá smá útrás :)
*
Í kvöld ætlum við Britta svo að halda smá matarboð fyrir þrjár aðrar stelpur í bekknum, verðum sem sagt fimm en ég á bara eldhúsáhöld fyrir fjóra! Hmmm...þarf einhvern vegin að redda því. Ætli ég fái ekki bara stelpurnar til að koma með auka diska og hnífapör með sér :) Vona samt að stelpurnar stoppi ekki mjög lengi...ojjj ég veit það er ömurlegt að segja þetta en ég bara verð að reyna að læra aðeins í kvöld líka og fara snemma að sofa...
*
En jæja, best að koma sér að efni dagsins...labour law in Europe!!!

Thursday 27 November 2008

Montblog

Jæja, það fer að líða að því að ég breytinu nafninu á þessu bloggi í "Montbloggið"...hahaha...það er bara svo gaman að fá einkunnir fyrir verkefni sem eru yfirstaðin. Fékk sem sagt einkunn í dag fyrir kynninguna sem við héldum í gær. Kynningin gekk bara ótrúlega vel og viti menn...hópurinn minn fékk hæstu einkunnina í bekknum hahahaha...jebb jebb..ótrúlega gaman :) Kennarinn hrósaði okkur alveg í bak og fyrir fyrir frammistöðuna...ekki leiðinlegt :) Þetta verkefni gildir 50% af lokaeinkunn í þessu fagi, svo er próf í janúar þannig að maður fer allavega með gott veganesti inn í það próf :)
***
...Jæja þá er ég búin að fá útrás fyrir að deila þessari einkunn með ykkur...
***
Fór annars með bekknum í gær eftir kynninguna og fengum okkur einn kaldan á "skóla-barnum" til að ná okkur aðeins niður eftir kynningarnar. Svo var haldið beint á bókasafnið til að undirbúa næsta verkefni...verð að viðurkenna að þessi eini bjór fékk mig til að geispa frekar mikið...langaði bara að hendast upp í rúm og leggja mig hahaha...þannig að afköstin voru ekki beint mjög mikil í gær :) En ég ætla nú að reyna að vera duglegri í dag...
***
Annars eru akkúrat þrjár vikur í dag þangað til ég kem heim fyrir jólin....21 dagar...

Tuesday 25 November 2008

Deadline á morgun

Á morgun er kynning á Corporate Social Responsibility hópverkefninu okkar...það verður gott að losna við það svo maður geti nú einbeitt sér að næstu verkefnum...hahaha...ekki eins og maður fái eitthvað frí :) Þegar þessi kynning er búin eru tvö stór hópverkefni eftir ásamt einu einstaklings-fjármálaverkefni. Ég krosslegg bara hendur að þetta gangi allt vel upp...að minnsta kosti er ég í góðum hópum núna fyrir þessi verkefni :)
***
Britta og kæratinn elduðu svínalundir umvafnar í parmaskinku og ferskum kryddjurtum í rjómasósu í gær með smáttsöxuðum steiktum kartöflum og fersku grænmeti...mmmm þetta var æði. Það tók líka sinn tíma að elda þetta þar sem ég á bara eina pönnu þannig að við urðum að byrja að steikja kartöflurnar og svo halda þeim heitum í potti á meðan svínalundirnar voru steiktar á pönnunni. Það var aldeilis sem þau lögðu sig fram við að hafa flotta máltíð :)

Monday 24 November 2008

Matarboð í kvöld

Jebb jebb, Britta og kærastinn hennar ætla að kíkja í heimsókn í kvöld og elda kvöldmat fyrir mig :) Ekki er það nú verra. Kærastinn hennar er hérna í Glasgow núna í u.þ.b. 5 daga...en hann flýgur alltaf til hennar á tvegja vikna fresti...nææææs...en þau þurfa bara að borga 3.000-6.000krónur fyrir flugfarið fram og til bara frá Þýskalandi með RyanAir. Ekki alveg svo ódýrt að fljúga með Icelandair..hehe
***
Annars er dagurinn í dag búinn að fara í æfingar fyrir kynninguna sem við erum með á miðvikudaginn...frekar strangur kennari sem við erum með þannig að það er eins gott að standa sig. Annars hef ég ekki miklar áhyggjur af því...a.m.k. kann ég minn part vel og skirfaði líka handritið fyrir mig og annan í hópnum...þannig að maður er svo sem farinn að þekkja um hvað efnið snýst :)
***
Læt þetta verða að mottói næstu daga
***
"All power is from within and therefore under your control"
***

Sunday 23 November 2008

Kæruleysi í gærkvöldi...kominn tími til!!!

Allur gærdagurinn fór í hópavinnu þar sem við erum að fara að halda kynningu á miðvikudaginn. Þessi hópur er mjög góður, allir leggja sig fram við að gera sitt besta.
Seinnipartinn, klukkan fimm þegar skólabygginunni var lokað ákváðum við að enda hópavinnuna með því að fara á pöb og fá okkur einn kaldan bjór og spjalla aðeins. Þetta var algjör snilld, allir fengu sér bjór og í framhaldinu var ákveðið að borða saman um kvöldið líka. Við hittumst ca 15 úr bekknum og fengum okkur Tapas í kvöldmatinn. Vá þetta var algjört æði. Eftir matinn fórum við svo á pöb og fengum okkur tvo bjóra í viðbót. Allir skemmtu sér svo ótrúlega vel og ég hafði virkilega gott af því að taka smá kæruleysi á þetta, dressa mig upp, fá mér gott að borða, nokkra bjóra og skilja grámyglulega skólalúkkið eftir heima :)
***
Læt nokkrar myndir fylgja frá gærkvöldinu
Britta, Moriz og Corinne

Andreas, Jonny, Michelle og Preeti

Ég og Betty

Ég og Dmitri

Michelle og Zizi

Jonny, Britta og Corinne

Hassan og Betty

Preeti, Michelle og Zizi

Ég og Britta




Thursday 20 November 2008

"Here By Me"

Ég er ekki búin að hlusta á tónlist síðan ég kom hingað út...en ég gróf upp iPodinn minn í gærkvöldi og vá hvað það var æðislegt heyra smá tónlist. 3 doors down er í spilum núna...
I hope you’re doing fine out there without me
‘Cause I’m not doing so good without you
The things I thought you’d never know about me
Were the things I guess you always understood
*
So how could I have been so blind for all these years?
Guess I only see the truth through all this fear,
And living without you…
*
And everything I have in this world
And all that I’ll ever be
It could all fall down around me.
Just as long as I have you,
Right here by me.
*
I can’t take another day without you
‘Cause baby, I could never make it on my own
I’ve been waiting so long, just to hold you
And to be back in your arms where I belong
*
Sorry I can’t always find the words to say
But everything I’ve ever known gets swept away
Inside of your love…
*
And everything I have in this world
And all that I’ll ever be
It could all fall down around me.
Just as long as I have you,
Right here by me.
*
As the days grow long I see
That time is standing still for me
When you’re not here
*
Sorry I can’t always find the words to say
Everything I’ve ever known gets swept away
Inside of your love
*
And everything I have in this world
And all that I’ll ever be
It could all fall down around me.
Just as long as I have you,
Right here by me.
*
And everything I have in this world
And all that I’ll ever be
It could all fall down around me.
Just as long as I have you,
Right here by me.
***
Ég er búin að vera með fáránleg lög á heilanum síðustu vikkurnar...þó svo ég hafi ekki hlustað á neina tónlist þá hefur heilinn minn bara ákveðið að grafa upp gömul lög og festa þau á repeat!!! t.d. lagið með "Emil í Kattholti", "Sísí fríkar úti", "ég fíla dilla dilla" og ýmis skemmtilög jólalög..."jólahjól" og "Á fyrsta degi jóla gaf kærastan mín mér..." vá held að heilabúið sé eitthvað að tapa sér...hahahaha...en það er bara gaman að þessu :)

Wednesday 19 November 2008

Þriðjudagur til þrauta

Er ekki annars þriðjudagur í dag??? Allir dagar einhvern vegin eins hjá manni...

Í dag eru 29 dagar þangað til ég kem heim yfir jólin...spáið í því...minna en mánuður :) Þetta verður nú ekki mikið jólafrí hjá mér það sem það verða þrjú stór verkefni sem við eigum að vinna í fríinu ásamt að læra undir prófin í janúar...spennandi...frekar fyndið að þetta heila ár sem ég er í þessu námi verður aldrei frí! það segja kennararnir...fríið er fyrir þá sjálfa á meðan við erum í verkefnavinnu!! úfff...

Er núna að vinna í International Business og Human Resource Management verkefnum. Vantar einhvern vegin allan metnað í mig í dag...langar bara að fara að versla jólagjafir og hafa það kósí...einhver "down-tími" í gangi hjá mér...kannski eðlilegt eftir alla keyrsluna síðustu vikurnar!! Ég er nú samt ekki í einhverju þunglyndi...langt frá því...það væri bara gott að fá smá hvíld, hitta fjölskylduna og Atla, vinina og spjalla um allt og ekkert :)

Rakst annars á þessa líka skemmtilegu staðreynd þegar ég var að leita eftir heimildum fyrir HRM verkefnið mitt...Glasgow er í þriðja sæti yfir mestu rigningaborgir í Evrópu með að meðaltali 262 rigningadaga á ári...vúhú...

Jæja, back to business....knús... :)

Monday 17 November 2008

Afmælispartý og jólaljós

Leyfði mér að taka smá pásu um helgina...þ.e. fór í afmælispartý hjá einum í bekknum mínum og fékk mér einn bjór til tilbreytingar. Flestir í bekknum létu sjá sig í afmælinu...frekar fyndið hvað fólk hefur mismunandi hugmyndir um hvernig partý eru...við frá Evrópu vildum hafa tónlistina frekar lágt stillta til að geta spjallað saman en krakkarnir frá Indlandi vildu hafa allt í botni...en engu að síður var gaman að kíkja aðeins á fólkið og dreyfa aðeins huganum.




Annað áhugavert var að afmælisbarnið fékk frekar undarlega meðhöndlun..jú jú..ég held að myndirnar segi allt sem segja þarf. Indversku vinir hans tóku hann alveg fyrir og hentu honum til og frá um stofuna og að lokum var hann ataður út í súkkulaði og eggjum!!! hmmm...eitthvað sem ég hef aldrei upplifað áður...en hey...mismunandi þjóðir hafa mismunandi hugmyndir um skemmtun...hahaha



Þetta var nú ekki beint afmælismeðferð sem ég hefði óskað mér...reyndar vorum við frá Evrópu öll frekar hissa á súkkulaðiatvikinu...en maður lærir að minnsta kosti ýmislegt nýtt um menningu mismuandi þjóða!!!

*
Á sunnudagskvöldið elduðum við Britta saman kvöldmat, Britta er frá Þýskalandi og er ein af mínum betri vinkonum hérna, eitthvað svo heilsteypt og skipulögð....enda frá Þýskalandi haha :) Hún kom kom með uppástungu að brasilísum rétt sem við elduðum...hann var æði, þetta var fiskréttur með fullt af grænmeti með tómat/kókos/Tabascosósu...hrein snilld. Get ekki beðið eftir að gera tilraunir á Atla með þennan rétt...spicy og bragðmikill :)


Seinna um kvöldið tók ég svo smá göngutúr út að George Square en jólaljósin var kveikt þar um kvöldmatarleytið. Ótrúlega gaman að fá smá "jól í augun".


Næstu dagar munu svo einkennast að brjálæðislegri hópavinnu...vívíví...

***31 dagar í heimkomu ***

Saturday 15 November 2008

Farið að vetra

Aðeins farið að kólna hérna í Glasgow...þó svo það sé nú ekki farið að snjóa eins og heima á klakanum :) Tvær myndir til samaburðar frá því ég kom hérna í September...

September

Nóvember

Í kvöld ætla ég svo að fara í smá partý...jú jú mikið rétt. Einn í bekknum á afmæli og allir ætla að mæta...ætla að reyna að muna eftir að taka einhverjar myndir svo ég geti nú deilt þeim með ykkur :)

Annars er hérna mynd af CCM hópnum mínum...hehehe...þessum líka "æðislega" hóp...

Ég, Fan Wang, Niraj, Vihal og Dmitri



Friday 14 November 2008

Einkunn komin í hús

Fékk einkunnina fyrir Cross-cultural-management hópverkefnið í dag...verkefnið sem ég gerði ein og hinir í hópnum voru free-riders...eina sem þeir gerðu var að taka þátt í kynningunni...þ.e. muna handritið sem ég skrifaði og lét þá fá!!! Ég er endalaust ánægð með einkunnina...Fékk "Distinction" en það voru bara tveir hópar af öllum bekknum sem fengu svoleiðis einkunn...Distinction þýðir að hópurinn minn gerði framúrskarandi kynningu...betra heldur kröfur segja til um...vívíví...ótrúlega gaman...enda lagði ég ekkert smá á mig fyrir þetta verkefni :)
Nóg að verkefnum framundan...kemur svo sem ekkert á óvart...næstu dagar verða teknir í maraþonlestur svo maður viti nú hvað næstu verkefni snúast um...hehehe :)
Fór snemma að sofa í gær...mmmm...það var yndislegt...var komin upp í rúm um ellefu og svaf til hálf níu í morgun...nææææs...þurfti alveg á því að halda...endurhlaða batteríin.
Um helgina verða jólaljósin tendruð í Glasgow...ég ætla ekki að missa af þvi. Á sunnudagskvöldið ætlum ég og Britta svo líklega að elda saman til tilbreytingar. Ætlum jafnvel að fá kínverska meðleigjandann hennar í lið með okkur...væri nú ekki leiðinlegt að elda ekta kínverkan mat :)

Wednesday 12 November 2008

Kynningin yfirstaðin og afslöppun í dag

Æði skæði...hópurinn minn var að klára Cross-Cultural kynninguna rétt í þessu, held bara að við höfum staðið okkur mjög vel, allavega var kennarinn mjög stuðningsríkur...hahaha...gátum svarað öllum spurningum og allir stóðu sig vel í kynningunni :) Get ekki líst því hvað ég er ánægð...ég get eiginlega sagt með vissu að ég er að fara að ná þessu fagi. Held það þurfi eitthvað mikið til að kennarinn felli okkur!
*
Hvað er þá framundan....ég vil eiginlega ekki hugsa um það...það eru svo mörg verkefni sem bíða sem þarf að klára á næstu 4 vikum...úfff....
*
Það er þó alveg á hreinu að núna ætla ég að fara heim og taka til í íbúðinni...hef ekki tekið til í mjööög langan tíma....ryklufsurnar í hornunum eru orðnar frekar viðkunnulegar og heimakærar...hahahaha...Það er gott að geta dreift huganum aðeins í dag...þó svo það verði ekki algjör afslöppun, ég þarf víst að skipuleggja verkefni næstu daga og vikna...ágætt að dunda sér í því á meðan spennufallið frá kynningu dagsins er að ganga yfir :)
*
Í kvöld ætla ég svo að hitta nokkra krakka úr bekknum...jebb fá mér bjór og slappa aðeins af. Þarf nauðsynlega á því að halda ef ég ætla að halda geðheilsunni!!!
*
Síðasta laugardagskvöld hitti ég Brittu úr bekknum mínum og kærastan hennar á kaffihúsi, fengum okkur einn bjór til að dreifa huganum....leyfðum okkur bara að taka þessa klukkutímapásu frá verkefnagerð...þýðir ekkert kæruleysi :) Hérna eru nokkrar myndir sem ég tók


Jæja, ætla að fara heim og fá mér eitthvað gott að borða...bið að heilsa í bili :)

Monday 10 November 2008

Farin að tala við sjálfa mig

Er ekki sagt að ef maður eyðir miklum tíma einn þá byrjar maður að tala við sjálfan sig???
***
Ég er allavega farin að tala við sjálfan mig...og ekki bara í hljóði heldur upp hátt!!! Ég gleymi þá að minnsta kosti ekki íslenskunni á meðan...hehe...ég stóð sjálfa mig að verki í gærkvöldi þegar ég var komin upp í rúm til að fara að sofa að ég var að tala á fullu við sjálfa mig...já já ég viðurkenni það góðfúslega. Ég hugsa að þetta hafi eitthvað að gera með stress....allavega...þegar ég áttaði mig á því að ég var í hörkusamræðum við sjálfa mig ákvað ég að nota tækifærið og hrósa sjálfri mér og hvetja mig áfram upphátt...hahaha...hversu fyndið var það...en viti menn, ég hugsa að það hafi bara virkað vel á mig því ég var búin að vera svo stressuð um kvöldið og alveg ómöguleg yfir þessari hópkynningu sem við erum með á miðvikudaginn. Fannst einhvern vegin ekkert vera að ganga upp...en eftir "sjálfshvatninguna" róaðist ég a.m.k. það mikið að ég náði að sofna...
***
???Haldið þið nokkuð að ég sé gengin af göflunum???
***
Það verður ekki mikið um svefn í nótt...þarf að klára handritið fyrir kynninguna á miðvikudag, mogrundagurinn verður svo notaður í æfingar og fínpússa það sem þarf.
***
Annars byrjaði ég í nýjum áfanga í dag, Fjármálum, vúhú!!! Vonandi man ég eitthvað af því sem Villi Bjarna kenndi okkur í viðskiptafræðinni uppi í HÍ...það bara hlýtur að vera. Allavega gekk fyrsti tíminn fínt fyrir sig, vona að verkefnavinnan verði góð...alveg kominn tími á það...hehe...

Sunday 9 November 2008

Draumatal

Ég þoli ekki leiðinlega, sorglega, dramatíska drauma! Alveg merkilegt hvað mig getur dreymt mikið bull...ætla ekki einu sinni að reyna að lýsa draumi síðustu nætur...var þvílíkt fegin þegar ég vaknaði og áttaði mig á að raunveruleikinn væri miklu miklu miklu betri :)
En hvað um það...morguninn byrjaði með lúðrasveit og látum í hverfinu...verið að fanga stríðslokum í den og sitthvað fleira...veit ekki alveg nógu vel um hvað þetta snérist...en það var svo sem ágætt að hafa smá "klassíska" tónlist á leiðinni út á bókasafn ;) Þegar ég kom á bókasafnið þá var því miður ekki búið að opna það! Dí ég er algjör bókasafnsmoldvarpa...
Átti stuttan fund með "æðislega" hópnum mínum í hádeginu...held ég sé búin að koma okkur á ágætis spor með þetta verkefni. Allavega ætla ég að reyna að klára handritið fyrir kynninguna í dag og á morgun...
Blue-berry muffin og stór Latte í hádegismat....það var reyndar hádegismaturinn minn í gær líka! já já ég veit...þetta er ógeðslega óhollt...en bara svo ógeðslega gott...hahaha...nánast eina trítið sem maður fær þessa dagana...
Það hafa heldur betur verið mótmæli heima á Íslandinu í gær...og auðvitað stóðu Ruddarnir sig í stykkinu ásamt öðrum mótorhjólahetjum. Ég er búin að sjá myndbansupptöku frá spólinu fyrir framan Alþingishúsið...verð að segja að þetta lúkkað ekkert smá vel....veit svo sem ekkert hvort lögreglan hafi verið hrifin af þessu...en skv. því sem ég get best séð var mótorhjólafólkið til friðs...bara með flott show...ég ætla þó ekki að fullyrða neitt..hehehe. Ég klappa allavega fyrir þeim sem tóku þátt í mótmælunum. Vona að þetta skili einhverju...allavega fái þjóðfélagið til að hugsa og vera meðvitaðri um ástandið.
Annars er verið að skreyta alla borgina, bæjarstarfsmenn um allt að hengja upp jólaseríur. Sá í morgun að unnið var að því að setja upp stóra jólatréð á George Square...það verður svo kveikt á ljósunum á því og öðru jólaskrauti um alla borgina 16.nóvember...ég verð nú að láta sjá mig þar. Fá smá jól í augun :) Þannig að í staðin fyrir að mæta á Austurvöll þegar kveikt verður á jólatrénu þar þá verð ég við athöfnina á George square :) Get ekki beðið eftir jólunum ... :)

Saturday 8 November 2008

Hjólasumarið 2008

Gunni og Candy (úr Ruddunum) settu saman tvær myndaseríur um hjólasumarið 2008. Þvílíka snilldin sem þetta sumar var...good memories :)
Ef einhverjir hafa áhuga á að sjá myndböndin þá eru þau hér
Ruddasumarið 2008:
Road Race sumarið 2008:
Gunni og Candy fá stórt hrós frá mér fyrir þetta framtak.
Takk fyrir frábært hjólasumar
***Maður er strax farin að bíða eftir næsta sumri...get ekki beðið***

Friday 7 November 2008

Niðurstöður komnar í hús...

...JEI JEI JEI JEI......YÖÖÖÖÖÖÖÖSSSSS...
Var að fá einkunnina úr Strategy verkefninu sem hópurinnm inn kynnti í síðustu viku...hópavinnan sem var hreint út sagt hræðileg og ég hélt við myndum falla. En nei nei við náðum með stæl og ég og strákurinn sem gerðu alla vinnuna fengum hærri einkunn en hinir í hópnum okkar...þvílíka snilldin :)
Ég var líka að fá einkunn úr öðru hópaverkefni í International Business...góður hópur sem ég er í þar...enda fengum við hæstu einkunnina í bekknum...sorry ég bara verð að fá að monta mig því ég er búin að leggja svo óendanlega mikið á mig til að fá sem bestar einkunnir :) :) :)
***ÞANNIG AÐ NÚNA ER ÉG Í EINS GÓÐU SKAPI OG HÆGT ER AÐ VERA***
Get ekki annað sagt en að þetta sé hvatning inn verkefnavinnu helgarinnar...nú tek ég sko á Hofstede...hehehe...

Wednesday 5 November 2008

Celtic vs Man United

Stórleikur í Glasgow í kvöld...hahaha...allir á völlinn...allavega eini karlkyns skotinn í bekknum mínum :) Hann sagðist ekki mæta í skólan á morgun ef Celtic tapar! heldur betur alvara í þessu hérna...
Er að meigla hérna...hef ekkert að blogga um en er gjörsamlega með ritstíflu...er að reyna að skrifa eitthvað um gagnrýni á Hofstede....bleeeee...heilinn á mér ekki alveg að fúnkera. Krakkarnir sem eru með mér í hópverkefninu sögðu við mig í dag að ég væri búin að lesa yfir mig um Hofstede og allt væri örugglega komið í rugl í kollinum á mér..hahaha...góð réttlæting fyrir þau fyrir að lesa ekki meira!
Eftir að ég flutti hingað út þá tóku neglurnar mínar stökkbreytingu! Ég hef aldrei getað safnað nöglum (þrátt fyrir miklar tilraunir og ráðleggingar frá ástkæru Hjördísi minni í Eimskip:) en svo eftir að ég kom hingað út þá hef ég ekki hugsað neitt um neglurnar á mér. Ekki naglalakkað þær einu sinni...og viti menn...ég er komin með þessar líka flottu neglur...sjö níu þrettán...vona að þær brotni ekki allar á næstunni...ég er mikið búin að velta því fyrir mér hver ástæðan væri. Maturinn sem ég borða hérna er ekki mikið öðruvísi en heima....reyndar borða ég mjög mikið brauð hérna og nánast enga ávexti og grænmeti...heheh ekki gott, ég veit! og svo er það kannski vatnið...Í Glasgow er í lagi að drekka vatn úr krönunum en maður finnur samt að það er eitthvað aðeins öðruvísi á bragðið en heima. Kannski það hafi einhver áhrif eða kannski öll kaffidrykkjan....veit ekki...
Jæja...best að snúa sér aftur að Hofstede og þjóðmenningunni :)

Kjúlli hvert kvöld

Ok...ef ég kem fiðruð heim um jólin ekki láta ykkur bregða!!! Málið er að ég borða nánast bara kjúkling hérna...ég sver það það hljóta fljótlega að fara að vaxa á mér fjaðrir..hehe. En annars er ég voða montin hvað ég er dugleg að elda mér mat hérna...þessa tæpu tvo mánuði sem ég hef verið hérna hef ég eldað miklu oftar heldur en þessi tæpu tvö ár sem við Atli bjuggum á Eskivöllunum...Ég lít bara á það þannig að elda kvöldmat er "trítið" mitt hérna úti. Það er eini tíminn sem ég gef mér á hverjum degi til að taka mér pásu frá lestri. Þá er nú um að gera að leyfa sér að elda kvöldmat...setja David Gray í græjurnar og hugsa um eitthvað annað en kenningar og skólaverkefni :) Verð reyndar að viðurkenna að David Gray er orðinn svolítið þreyttur...enda er ég örugglega búin að hlusta á diskinn hans svona 20 sinnum í röð þar sem þetta er eini geisladiskurinn sem ég á...hahah ég þarf að gera mér ferð út í búð og kaupa eitthvað nýtt stöff :)
Annars er ég að fara að skila einu verkefni í hádeginu í dag...vívíví...reyndar gildir verkefnið bara 10% af heildareinkunn en einhvern vegin eyðir maður alltaf hlutfallslega mestum tíma í litlu verkefnin. Hópurinn sem ég er í í þessu fagi er góður...vei loksins :) Þegar tímar dagsins hafa klárast kl 5 í dag verður Hofstede aftur tekin upp þar sem kynning á gagnrýni á menningarmódelinu hans verður næsta miðvikudag! Ufff það verður ekki lítið að gera hjá mér næstu daga...hópurinn í þessu fagi er hreint út sagt glataður...sjáum hvað setur!
Hversu slæmt er það orðið þegar maður eyðir meiri pening í kaffidrykkju á dag heldur en mat??? ég er orðin Latte fíkill...að minnsta kosti einn latte á dag kemur skapinu í lag! eða allavega heldur manni gangandi hehe...málið er að hver latte kostar 2 pund = 400kr íslenskar. Þannig að nú verð ég að fara að setja mér Latte-reglur. Ekki fleiri en einn Latte á dag...og reyna að takmarka drykkjuna við 5 Latte á viku! er þetta ekki raunhæft? maður verður að hafa eitthvað skipulag á þessu...annars drekk ég endalaust Latte...fyrir utan að Latte er nú ekki beint holt eða hitaeiningasnautt...hahaha

Monday 3 November 2008

Halloween myndir

Þó svo ég hafi ekki farið í bíó á föstaudagskvöldið eins og ég var búin að lofa mér þá bætti ég sjálfri mér það upp með því að fara í Halloween party á laugardagskvöldinu. Bretar halda mikið upp á Halloween og leggja mikið upp úr að vera í flottum búningum...tók nokkrar myndir til að deila með ykkur. Það var alveg á hreinu að ég var sú metnaðarlausasta þegar kom að búningavali...hahaha

Fékk mér tvo bjóra til að slaka á og fór heim rétt fyrir miðnætti...enda var vaknað í bítið og byrjað að lesa...vill svo skemmtilega til að Cross Cultural Management hópurinn minn lærir ekki rassgat! þar af leiðandi lítur út fyrir að ég þurfi að læra á við fimm manns til að byggja upp rök fyrir kynninguna okkar í næstu viku...ég klappa sjálfri mér mikið á bakið þessa dagana til að komast í gegnum þetta :) hahaha...get ekki beðið eftir að þetta hópverkefni er búið...þá byrja ég í nýjum hóp sem er algjör snilld :)

Saturday 1 November 2008

Halloween og supercars

Ég sem ætlaði að taka mér pásu í gærkvöldi og fara í bíó...hahaha...samviskan fór alveg með mig og ég ákvað að vera heima í staðin og lesa! Ennnn...í kvöld fer ég út, Halloween var nefninlega í gær og ein í bekknum okkar ætlar að hafa smá Halloween partý í kvöld. Eina skilyrðið er að koma í einhvers konar búning...eða að minnsta kosti með "bunny-ears", maður verður nú að taka þátt :)
En að öðru..tók eftir þessu í blaðinu í dag...
...Lögreglan á Ítalíu búin að fá sitt þriðja eintak af alvöru lögreglubíl í hendurnar...
...Lamborghini Gallardo...

Kannski að íslenska lögreglan ætti að panta eitt svona eintak til að gera stéttina áhugaverðari...væru eflaust margir sem myndu taka lögreglustarfið í sjálfboðavinnu :)